Persónuleikabók

Persónulýsing 'Leiðarvísir' er um það bil 90 síðna bók sem fjallar um þig, hæfileika þína, upplag og þarfir. Sérstök áhersla er lögð á hagnýti, það að vara þig við athöfnum og aðstæðum sem eru slæmar fyrir þína persónugerð og benda á athafnir sem styrkja þig og auka orku þína.

Bókin lýsir þér í sambandi við lífsorku, heimili, hugsun, ást, vinnu, framkomu og markmið. Hún bendir á þarfir þínar á öllum þessum sviðum og gefur ráð um athafnir sem henta þeim öllum. Bókin er upplögð fyrir þá sem vilja bæta við sjálfsþekkingu sína, en er sömuleiðis einstök og falleg gjöf. Margir eiga allt, nú til dags, en fáir eiga 'Persónuleikabók' um sjálfa(n) sig!

Athugið að hver bók er handgerð, útbúin sérstaklega fyrir hvern einstakling útfrá fæðingardegi, ári, tíma og stað. Hægt er að gera bók ef einungis er til staðar fæðingardagur og ár, en ekki tími. Í slíku tilviki verða kaflar bókarinnar fimm, í staðinn fyrir sjö.

Fullt verð er aðeins 9750 ISK
Sendingarkostnaður er 0 ISK



Einnig er hægt að panta bókina í síma 863 1088 eða með tölvupósti á gg@stjornuspeki.is og sækja hana til okkar. Bókin greiðist þá við afhendingu og enginn sendingarkostnaður leggst ofan á verðið.

Sýnishorn:

Yfirlit yfir persónuleikann Athafnir sem styrkja þig Ráðleggingar
Heimurinn þinn Eining lífsins Eðli persónuleikans
Smelltu á mynd til að sjá stærri útgáfu


Stjörnuspekistöðin ehf - Tangarhöfði 2, 110 Reykjavík - sími: 863 1088
kt: 650204-2980 - vsk nr: 85466 - gg@stjornuspeki.is